Hallgrímskirkja

 

Til væntanlegra fermingarbarna vorsins 2007 og foreldra/forráðamanna þeirra

Fermingarfræðslan veturinn 2006 - 2007.

N.k. þriðjudag 15. ágúst, kl. 10:00, hefst haustnámskeiðið, sem kynnt var á kynningar- og innritunarfundinum, hinn 29. maí sl. En eins og fram kom þar og í fundarboðinu, skiptist fræðslan í vetur í eftirfarandi þætti og valmöguleika:

1. Haustnámskeið í ágúst, nánar tiltekið dagana 15. - 18. ágúst (þriðjud. - föstud.). Námskeiðið stendur dag hvern frá kl. 9:00 - 15:00, nema þriðjudag kl. 10:00 - 15:00. Á námskeiðinu fer fram hefðbundin fræðsla fyrir hádegi, en eftir hádegi verða vettvangsferðir, verkefnavinna og samræðutímar. Boðið verður upp á léttan hádegisverð. Síðan verður “langur laugardagur” í vetur amk. tvisvar (auglýst síðar). Auk þess mæta börnin í eina guðsþjónustu í mánuði allan veturinn og taka þátt í mánaðarlegum samverustundum.

2. Þau börn sem ekki geta eða kjósa ekki að taka þátt í haustnámskeiðinu, geta valið um að koma í fræðslustundir einu sinni í viku allan veturinn. Fyrir þau verður einnig “langur laugardagur”. Auk þess eiga þau að sækja eina guðsþjónustu í mánuði allan veturinn og ennfremur mánaðarlegar samverustundir, ásamt þeim er sækja haustnámskeiðið.

Sólarhringsferð í Vatnaskóg verður síðan fyrstu helgi í mars nk.

Innritun: Þau börn sem ekki hafa nú þegar látið innrita sig, geta gert það ennþá. Best er að hafa samband í síma 510 1000, þriðjud. - fimmtud. kl. 10:30 - 12:00.

Fermt verður á annan páskadag, 9. apríl 2007 og sunnudaginn eftir páska, 15. apríl 2007, kl. 11 fh báða dagana.

Birna Hjaltadóttir, 10/8 2006 kl. 16.29

     

    Hallgrímskirkja, Skólavörðuholti, pósthólf 651, 121 Reykjavík. Sími 510 1000 , fax 510 1010 · WP · Kerfi RSS