Hallgrímskirkja

 

Tvær messur í Hallgrímskirkju

Sunnudaginn 27. ágúst, sem er ellefti sunnudagur eftir þrenningarhátíð er messa kl. 11.00. Nývígður skólaprestur, sr. Guðni Már Harðarson mun verða settur inn í embætti af sr. Jóni Dalbú Hróbjartssyni, prófasti. Sr. Guðni Már prédikar. Messuþjónar eru úr röðum skólafólks. Systurnar Erla Björg og Rannveig Káradætur syngja dúett í messunni, en þær eru báðar í söngnámi. Organisti er Lára Bryndís Eggertsdóttir og hópur úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiðir safnaðarsöng. Sögustund fyrir börnin.

Kl. 14.00 er ensk messa í umsjá sr. Bjarna Þórs Bjarnasonar. Organisti er Lára Bryndís Eggertsdóttir og Guðrún Finnbjarnardóttir er forsöngvari.

Birna Hjaltadóttir, 24/8 2006 kl. 12.05

     

    Hallgrímskirkja, Skólavörðuholti, pósthólf 651, 121 Reykjavík. Sími 510 1000 , fax 510 1010 · Kerfi RSS