Hallgrímskirkja

 

Vetrarstarf Hallgrímskirkju að hefjast

Sunnudaginn 3. sept. hefst formlega vetrarstarf Hallgrímskirkju. Með messu kl. 11.00 hefst hefðbundið barnastarf kirkjunnar, en þá fá börnin fræðslu og samfélag við hæfi þegar kemur að prédikun dagsins. Í messunni verður starfsfólk kirkjunnar og vetrarstarfið kynnt og fulltrúar hinna ýmsu starfsgreina lesa ritningarorð og biðja bænir dagsins. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Maríu Ágústsdóttur og Magneu Sverrisdóttur djákna. Organisti Hörður Áskelsson, kantor. Eftir messu verður boðið upp á kaffisopa að venju.

Laugardag 2. sept., kl. 16.00 verður opnuð haustsýning Listvinafélags Hallgrímskirkju, en það eru myndverk eftir Hafliða Hallgrímsson.

Hafliði Hallgrímsson< ?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

Stutt ferilságrip

Hafliði Hallgrímsson fæddist á Akureyri. Hann stundaði sellónám við Tónlistar-skólann í Reykjavík frá 17 ára aldri og útskrifaðist þaðan fjórum árum síðar. Hann hélt náminu áfram næsta vetur við Accademia Santa Cecilia í Róm hjá hinum þekkta sellóleikara Enrico Mainardi.

Eftir að hafa starfað í eitt ár við Sinfóníuhljómsveit Íslands hóf hann nám við Konunglegu tónlistarakademíuna í Lundúnum. Hann útskrifaðist frá Akademíunni með tvenn verðlaun.

Hafliði naut mikillar velgengni sem sellóleikari í mörg ár og kom reglulega fram á kammertónleikum og með píanóleikaranum Robert Bottone. Hann lék einnig oft einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands.

Hann starfaði sem sellóleikari í London í áratug og lék í mörgum af fremstu kammersveitum borgarinnar, svo sem Ensku kammersveitinni, Monteverdi Orchestra og Menuhin Festival Orchestra. Á ferli sínum sem sellóleikari kom hann fram á tónleikum með hljómsveitum, kammerhópum og sem einleikari í yfir 40 löndum.

Árið 1977 var Hafliði ráðinn fyrsti sellóleikari Skosku kammersveitarinnar og settist að í Edinborg.

Hafliði Hallgrímsson hefur alla tíð samið tónlist auk spilamennskunnar og hann stundaði tónsmíðanám í London hjá Sir Peter Maxwell Davies og Dr. Alan Bush. Árið 1983 ákvað hann að helga sig algjörlega tónsmíðum. Frá þeim tíma hefur hann samið fast að 100 tónverkum, en mörg þeirra hefur hann reyndar dregið til baka. Hann hefur unnið ýmis mikilvæg tónsmíðaverðlaun, m.a. Tónlistar-verðlaun Norðurlandaráðs árið 1986.

Tónverk hans eru margskonar, allt frá litlum stykkjum fyrir börn til óperu í fullri lengd, Die Wält der Zwischenfälle (Viröld fláa), sem er byggð á örsögum eftir rússneska absúrdistann Daniil Kharms. Óperan var frumsýnd fyrir tveimur árum í Borgarleikhúsinu í Lübeck í Þýskalandi og var einnig sýnd á óperuhátíð í Vín á síðasta ári, og hefur fengið frábæra dóma.

Hafliði Hallgrímsson hefur ætíð haft mikinn áhuga á myndlist og á meðan hann bjó í London sótti hann myndlistartíma við Art’s Guild og St. Martin’s School of Art. Á árum sínum í Edinborg hefur hann af og til unnið við Printmakers Workshop og síðastliðinn vetur sótti hann tíma við Listaháskóla Edinborgar.

Hafliði hélt fyrstu sýningu sína á teikningum og málverkum í heimabæ sínum Akureyri árið 1967. Síðan hefur hann sýnt teikningar, ætingar og málverk í Listasafni Akureyrar, Norræna húsinu (tvisvar), Skálholti og á Listahátíðinni í Colchester á Englandi.

Þetta er önnur sýning Hafliða í Hallgrímskirkju.

Annað helgihald verður með svipuðu sniði og áður en þó með viðbót og nýjungum, en það raðast á vikudagana þannig:

Alla mánudaga

verða bænastundir í hádeginu kl. 12.15.

Alla þriðjudaga

verða fyrirbænamessur kl. 10.30

Alla miðvikudaga

verður morgunmessur kl. 08.00, léttur morgunverður og spjall á eftir.

Alla fimmtudaga

verða kyrrðarstundir kl. 12.00 með tónlist, hugvekju og bænum, en að lokinni stundinni í kirkjunni er boðið upp á léttan hádegisverð á vægu verði.

Á laugardögum einu sinni í mánuði verður aftansöngur kl. 17.00, auglýst hverju sinni.

Enskar messur

verða áfram á sunnudögum kl. 14.00 síðasta sunnudag hvers mánaðar í umsjá sr. Bjarna Þórs Bjarnasonar.

Barna- og unglingastarf

Hallgrímskirkju hefst í vikunni, en það er fyrir börn og unglinga frá 6-16 ára í mörgum deildum. Magnea Sverrisdóttir, djákni stýrir öllu þessu starfi og hefur mjög hæft og gott fólk með sér.

Fermingarstarfið er þegar hafið og er hægt að fá upplýsingar um það hjá prestum og djákna kirkjunnar.

Barna- og unglingakórar

verða þrír starfandi við kirkjuna. Barnakór Hallgrímskirkju og Austurbæjarskóla, Unglingakór Hallgrímskirkju og Drengjakór Reykjavíkur í Hallgrímskirkju. Friðrik S. Kristinsson er stjórnandi allra þessara kóra.

Mótettukór Hallgrímskirkju hefur þegar hafið vetrarstarf sitt, en stjórnandi hans verður Hörður Áskeslsson, en hann stjórnar einnig Schola cantorum. Báðir þessir kórar verða með mjög fjölbreytta og spennandi dagskrá í vetur.

Listvinafélag Hallgrímskirkju

verður með fjölbreytta dagskrá að vanda, næstu viðburðir verða í tenglsum við Hallgrímsdaginn helgina 27.-29. október, en þá verður m.a. málþing um Hallgrím Pétursson og samtíðarmenn hans í Evrópu í umsjá dr. Margrétar Eggertsdóttur, formanns félagsins. Þá verða kórtónleikar á Allra Heilagra messu kl. 20.00, flutt verður Requiem eftir André Campra. Framkvæmdastjóri Listvinafélagsins er Inga Rós Ingólfsdóttir.

Kvenfélag Hallgrímskirkju

hefur félagsfundi fyrsta fimmtudag hvers mánaðar, sá

fyrsti verður 5. október. Formaður félagsins er Ása Guðjónsdóttir.

Starf fyrir eldri borgara

verður á þriðjudögum og föstudögum kl. 11.00-14.00 í kórkjallara kirkjunnar. Boðið verður upp á leikfimi, súpu, og samfélag. Umsjónamaður þessa starfs verður í vetur Margrét Hróbjartsdóttir hjúkrunarfræðingur, en Geirlaug Björg Geirlaugsdóttir íþróttakennari sér um leikfimina.

Einu sinni í mánuði verða opin hús með dagskrá á miðvikudögum kl. 14.-16. Fyrsta opna húsið verður 27. sept. í umsjá presta og djákna kirkjunnar.

Foreldramorgnar

verða alla miðvikudaga kl. 10-12 í umsjá Magneu Sverrisdóttur.

Fullorðinsfræðsla

verður alla sunnudagsmorgna kl. 10.00 á undan messu og hefst fyrsta sunnudag í október. Fræðslumorgnarnir verða í október og nóvember og síðan aftur í febrúar og mars. Sr. María Ágústsdóttir verður umsjónarmaður fræðslumorgnanna.

Einnig verða tvö styttri námskeið á miðvikudagskvöldum kl. 20.00 í samvinnu við Leikmannaskóla Þjóðkirkjunnar og verða þau auglýst síðar.

Við Hallgrímskirkju er einnig starfandi áhugahópur um kristniboð og hjálparstarf. Formaður hópsins er Ásgeir M. Jónsson.

AA og EA fundir eru í kórkjallar kirkjunnar á miðvikudgs- fimmtudags- og föstudagskvöldum.

Birna Hjaltadóttir, 31/8 2006 kl. 13.55

     

    Hallgrímskirkja, Skólavörðuholti, pósthólf 651, 121 Reykjavík. Sími 510 1000 , fax 510 1010 · Kerfi RSS