Hallgrímskirkja

 

Drengjakórinn syngur í Hallgrímskirkju

Sunnudaginn 24. sept., sem er fimmtándi sunnudagur eftir þrenningarhátíð, er messa og barnastarf kl. 11.00 í Hallgrímskirkju. Prestar og djákni safnaðarins þjóna ásamt fermingarbörnum, sem taka þátt í messunni með ritningarlestri, lestri bæna o.fl. Drengjakór Reykjavíkur í Hallgrímskirkju syngur í messunni undir stjórn Friðriks S. Kristinssonar. Vetrarstarf Drengjakórsins er ný hafið, en nú syngja um 45 drengir í kórnum. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Eftir messu er boðið upp á molasopa.

Kl. 14.00 er ensk messa í umsjá sr. Bjarna Þórs Bjarnasonar, organisti Björn Steinar Sólbergsson og forsöngvari Jónína Kristinsdóttir.

Birna Hjaltadóttir, 20/9 2006 kl. 9.46

     

    Hallgrímskirkja, Skólavörðuholti, pósthólf 651, 121 Reykjavík. Sími 510 1000 , fax 510 1010 · Kerfi RSS