Hallgrímskirkja

 

Guðrún Ásmundsdóttir á fræðslumorgni í Hallgrímskirkju

Næstkomandi sunnudag, 1. október, hefst ný fyrirlestraröð með erindinu “Tukthúsið og Tobbukot”. Það er Guðrún Ásmundsdóttir, leikkona, sem segir sögur af íbúunum á Skólavörðustíg 9 og 11, Sigurði Jónssyni, fangaverði, og Þorbjörgu Sveinsdóttur, embættisljósmóður, en Þorbjörg var fyrsta konan sem lét til sín taka á mannfundum í Reykjavík. Áður hefur Guðrún haldið erindi um Ólafíu Jóhannsdóttur, sem var systur- og fósturdóttir Þorbjargar, og nú gefst tækifæri til að skyggnast inn í það umhverfi sem mótaði þá merku konu

Guðrún Ásmundsdóttir á fræðslumorgni í Hallgrímskirkju

Fræðslumorgnar kl. 10 á sunnudögum í Hallgrímskirkju hafa verið fastur liður í fullorðinsfræðslu safnaðarins í á annan áratug. Markmið þeirra er að miðla upplýsingum um ýmis málefni í sögu og samtíð og vera þannig vettvangur skoðanaskipta og nýrra hugmynda í ljósi kristinnar trúar. Af sögunni lærum við að fóta okkur í samtímanum og samtíminn hrópar á kristið fólk að sýna trú sína í verki á öllum sviðum mannlífsins. Val viðfangsefna fræðslumorgnanna tekur mið af þessu tvennu; sögunni sem mótar okkur og þeirri áskorun sem samtíminn er.

Næstkomandi sunnudag, 1. október, hefst ný fyrirlestraröð með erindinu “Tukthúsið og Tobbukot”. Það er Guðrún Ásmundsdóttir, leikkona, sem segir sögur af íbúunum á Skólavörðustíg 9 og 11, Sigurði Jónssyni, fangaverði, og Þorbjörgu Sveinsdóttur, embættisljósmóður, en Þorbjörg var fyrsta konan sem lét til sín taka á mannfundum í Reykjavík. Áður hefur Guðrún haldið erindi um Ólafíu Jóhannsdóttur, sem var systur- og fósturdóttir Þorbjargar, og nú gefst tækifæri til að skyggnast inn í það umhverfi sem mótaði þá merku konu.

Fræðslumorgnar eru átta sunnudagsmorgna í október og nóvember og eru haldnir í suðursal Hallgrímskirkju. Sr. María Ágústsdóttir hefur umsjá með fræðslumorgnunum fyrir hönd Hallgrímskirkju. Allir eru velkomnir og aðgangur ókeypis.

Birna Hjaltadóttir, 26/9 2006 kl. 14.41

     

    Hallgrímskirkja, Skólavörðuholti, pósthólf 651, 121 Reykjavík. Sími 510 1000 , fax 510 1010 · WP · Kerfi RSS