Hallgrímskirkja

 

KLAIS ORGELIÐ HLJÓMAR

Listvinafélag Hallgrímskirkju heldur áfram með hádegistónleikaröðina KLAISORGELIÐ HLJÓMAR! n.k. laugardag 16.september kl.12. Björn Steinar Sólbergsson leikur og kynnir glæsilega orgeltónlist frá “Belle epoque” tímabilinu. Á efnisskránni eru aðgengileg og fjölbreytt stutt verk , m.a. Bolero eftirAlexandre Lefebury-Wely, Notre Dame eftir Leon Boëllman og fantasía eftir C. Saint-Saëns.

Markmið þessara stuttu hádegistónleika er að kynna stórfenglegan hljóðheim orgelsins fyrir áheyrendum á öllum aldri og hefur þessi nýbreytni í orgeltónleikahaldi hlotið afar góðar viðtökur.
Aðgangur er ókeypis fyrir listvini, börn og nemendur undir 26 ára aldri. Ilmandi vöfflur og rjúkandi kaffi í frönskum antikbollum verður selt í suðursal kirkjunnar að tónleikunum loknum.Björn Steinar Sólbergsson hefur nýverið tekið við hlutastarfi sem organisti Hallgrímskirkju við hlið Harðar Áskelssonar og einnig sem skólastjóri Tónskóla Þjóðkirkjunnar. Hann er einn af fremstu orgelleikurum Íslands og hefur fengið margvíslegar viðurkenningar fyrir störf sín. Björn Steinar hefur margsinnis komið fram á tónleikum í Hallgrímskirkju bæði sem einleikari og með kórum kirkjunnar. Þá hefur hann leikið á tónleikum víða um land og erlendis. Björn Steinar er í ársleyfi frá Akureyrarkirkju. Þessir tónleikar verða síðustu orgeltónleikar um nokkurt skeið í Hallgrímskirkju, en nýlokið er þar tónleikaröðinni Alþjóðlegt orgelsumar, þar sem úrvals organistar víða að úr heiminum voru gestir Klais orgelsins á 25 tónleikum yfir sumarmánuðina og þúsundir þakklátra gesta hlýddu á.

Birna Hjaltadóttir, 14/9 2006 kl. 19.38

     

    Hallgrímskirkja, Skólavörðuholti, pósthólf 651, 121 Reykjavík. Sími 510 1000 , fax 510 1010 · Kerfi RSS