Hallgrímskirkja

 

Sunnudagurinn 1. október

Sunnudagurinn 1. október er 16. sd. e. þrenningarhátíð. Fræðslumorgunn kl. 10:00 þar sem Guðrún Ásmundsdóttir, leikkona, flytur fyrirlestur um “Tugthúsið og Tobbukot.

Sunnudagurinn 1. október er 16. sd. e. þrenningarhátíð. Fræðslumorgunn kl. 10:00 þar sem Guðrún Ásmundsdóttir, leikkona, flytur fyrirlestur um “Tugthúsið og Tobbukot.

Messa og barnastarf kl. 11.00. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Maríu Ágústsdóttur. Lára Bryndís Eggertsdóttir verður organisti. Hópur úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiðir almennan safnaðarsöng. Stofnaðir hafa verið 5 hópar messuþjóna við Hallgrímskirkju, en þeir munu þjóna að messunni til skiftis, lesa ritningarlestra og bænir, aðstoða við útdeilingu sakramentisins o. fl. Barnastarfið er í umsjá Magneu Sverrisdóttur, djákna. Eftir messu er boðið upp á molasopa.

Birna Hjaltadóttir, 29/9 2006 kl. 10.27

     

    Hallgrímskirkja, Skólavörðuholti, pósthólf 651, 121 Reykjavík. Sími 510 1000 , fax 510 1010 · Kerfi RSS