Hallgrímskirkja

 

Fræðslumorgunn í Hallgrímskirkju

Nk. sunnudag, 8. október, verður “Kærleiksþjónusta og hjálparstarf” til umfjöllunar á Fræðslumorgni í Hallgrímskirkju, en sú er áherslan í starfi Þjóðkirkjunnar starfsárið 2006-2007. Ragnheiður Sverrisdóttir djákni og verkefnisstjóri kærleiksþjónustusviðs á Biskupsstofu fjallar um efnið á lifandi og skemmtilegan hátt ásamt Magneu Sverrisdóttur djákna Hallgrímssóknar.

Hvað er kærleiksþjónusta? Hvað er djákni? Nk. sunnudag, 8. október, verður “Kærleiksþjónusta og hjálparstarf” til umfjöllunar á Fræðslumorgni í Hallgrímskirkju, en sú er áherslan í starfi Þjóðkirkjunnar starfsárið 2006-2007. Ragnheiður Sverrisdóttir djákni og verkefnisstjóri kærleiksþjónustusviðs á Biskupsstofu fjallar um efnið á lifandi og skemmtilegan hátt ásamt Magneu Sverrisdóttur djákna Hallgrímssóknar, sem veitir innsýn í það mikilvæga starf sem unnið er undir merkjum kærleiksþjónustu í Hallgrímssókn. Fræðslumorgunn hefst kl. 10.00 í suðursal Hallgrímskirkju og stendur fram undir kl. 11.00, þegar messa og barnastarf kallar söfnuðinn til kirkju. Allir eru hjartanlega velkomnir og heitt á könnunni.

Birna Hjaltadóttir, 5/10 2006 kl. 12.45

     

    Hallgrímskirkja, Skólavörðuholti, pósthólf 651, 121 Reykjavík. Sími 510 1000 , fax 510 1010 · Kerfi RSS