Messa og barnastarf í Hallgrímskirkju
Sunnudaginn 8. október, sem er sautjándi sunnudagur eftir þrenningarhátíð, er messa og barnastarf kl. 11.00. Séra Birgir Ásgeirsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt hópi messuþjóna. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson.
Sunnudaginn 8. október, sem er sautjándi sunnudagur eftir þrenningarhátíð, er messa og barnastarf kl. 11.00. Séra Birgir Ásgeirsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt hópi messuþjóna. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Hópur úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiðir almennan safnaðarsöng. Barnastarfið er í umsjá Magneu Sverrisdóttur, djákna. Eftir messu er boðið upp á molasopa.
Birna Hjaltadóttir, 5/10 2006 kl. 13.14