Hallgrímskirkja

 

Aðventa og jól í Hallgrímskirkju

Sunnudaginn 3. desember, sem er fyrsti sunnudagur í aðventu og jafnframt fyrsti sunnudagur kirkjuársins, er hátíðarmessa og barnastarf kl. 11.00. Biskup Íslands, herra Karl Sigurbjörnsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt prestum safnaðarins. Mótettukór Hallgrímskirkju syngur undir stjórn Harðar Áskelssonar. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson.

Í messunni verður safnað til Hjálparstarfs kirkjunnar. Kaffi eftir messu. Sjá nánar um messur á aðventunni og um hátíðarnar undir liðnum “Helgihald” og þar undir liðnum “messur”.

Birna Hjaltadóttir, 29/11 2006 kl. 11.16

     

    Hallgrímskirkja, Skólavörðuholti, pósthólf 651, 121 Reykjavík. Sími 510 1000 , fax 510 1010 · Kerfi RSS