Hallgrímskirkja

 

Frönsk sálumessa á allra heilagra messu

Sunnudaginn 5. nóvember gengst Listvinafélag Hallgrímskirkju fyrir sálumessutónleikum. Að þessu sinni fær Listvinafélagið kammerkórinn Schola cantorum og Alþjóðlegu barokksveitina í Haag til liðs við sig. Flutt verða verkin Messe de requiem og De profundis eftir franska tónskáldið André Campra (1660-1744) en hvorugt þessara verka hefur verið flutt hér á landi áður.

Hefð hefur skapast fyrir því að flytja sálumessu í Hallgrímskirkju á allra heilagra messu. Margir leggja leið sína í kirkjuna á þessum degi til að minnast látinna ástvina sinna á hátíðlegan hátt og hefur undanfarin ár verið uppselt á sálumessutónleika Listvinafélagsins. Stjórnandi er Hörður Áskelsson.

Schola cantorum

hefur í gegnum tíðina flutt ýmis verk barokkmeistaranna við góðan orðstír. Að þessu sinni skipa kórinn tíu söngvarar en nokkrir þeirra fara jafnframt með einsöngshlutverk. Schola cantorum var útnefndur Tónlistarhópur Reykjavíkur 2006.

Alþjóðlega barokksveitin í Haag

er íslenskum tónleikagestum að góðu kunn en sveitin hefur undanfarin misseri starfað með kórum Hallgrímskirkju við flutning á tveimur stórvirkjum Jóhanns Sebastíans Bachs; Matteusarpassíunni og Jólaóratóríunni tvenn síðustu jól. Hljómsveitin er skipuð ungu fólki sem hefur sérmenntað sig í flutningi gamallar tónlistar á upprunaleg hljóðfæri og hlotið mikið lof fyrir leik sinn.

Sverrir Jónsson, 2/11 2006 kl. 13.13

     

    Hallgrímskirkja, Skólavörðuholti, pósthólf 651, 121 Reykjavík. Sími 510 1000 , fax 510 1010 · Kerfi RSS