Hallgrímskirkja

 

Hólabækur heim - Sunnudagsmorgunn í Hallgrímskirkju

Á Fræðslumorgni í Hallgrímskirkju sunnudaginn 19. nóvember kl. 10.00 fjallar Ólafur Pálmason, magister, um Þjóðargjöfina, bækur úr hinu umfangsmikla bókasafni sr. Ragnars Fjalars Lárussonar, fyrrum sóknarprests Hallgrímssóknar, sem nú eru komnar heim að Hólum í tilefni 900 ára afmælis staðarins.

Fræðslumorgunn í Hallgrímskirkju, sunnudaginn 19. nóvember sem er tuttugasti og annar sunnudagur eftir þrenningarhátíð.

Ólafur Pálmason, magister, fjallar um Þjóðargjöfina, bækur úr hinu umfangsmikla bókasafni séra Ragnars Fjalars Lárussonar, sóknarprests Hallgrímssóknar.

Ber erindið yfirskriftina: Hólabækur heim og mun Ólafur sýna myndir af völdum bókum og greina frá sérstöðu þeirra. Að því loknu verður gengið til barnastarfs og messu, þar sem sr. Birgir Ásgeirsson predikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Maríu Ágústsdóttur. Messuhópur fermingarbarna aðstoðar, en fermingarbörn vorsins og foreldrar þeirra eru sérstaklega boðin velkomin til messunnar. Þrír barnakórar syngja í messunni undir stjórn Friðriks S. Kristinssonar, Drengjakór Reykjavíkur, Unglingakór Hallgrímskirkju og Barnakór Hallgrímskirkju og Austurbæjarskóla. Organisti er Hörður Áskelsson. Allir eru velkomnir á Fræðslumorgun og messu í Hallgrímskirkju og til samfélags í suðursal á eftir.

Birna Hjaltadóttir, 15/11 2006 kl. 11.45

     

    Hallgrímskirkja, Skólavörðuholti, pósthólf 651, 121 Reykjavík. Sími 510 1000 , fax 510 1010 · Kerfi RSS