Jafnrétti menntunar á Fræðslumorgni í Hallgrímskirkju
Á Fræðslumorgni í Hallgrímskirkju nk. sunnudag, 26. nóvember, verður flutt erindi undir yfirskriftinni: 95 ár frá jafnrétti til náms, námsstyrkja og embætta. Þar mun Valborg Sigurðardóttir lýsa aðdraganda þess að íslenskar konur fengu jafnan rétt á við karla til náms og embætta árið 1911.
Valborg er uppeldis- og menntunarfræðingur, fyrrum skólastjóri Fósturskóla Íslands og höfundur bókarinnar “Íslenska menntakonan verður til”, sem kom út á fyrra ári. Allt áhugafólk um fræðslumál og jafnrétti er velkomið á Fræðslumorgun í suðursal Hallgrímskirkju. Erindið hefst kl. 10.00 og lýkur með molasopa. Þessi sunnudagur er síðasti sunnudagur eftir þrenningarhátíð og jafnframt síðasti sunnudagur kirkjuársins.Kl. 11.00 er svo messa og barnastarf. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson predikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Birgi Ásgeirssyni. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiða messusönginn.
Kl. 14.00 er ensk messa í umsjá sr. Bjarna Þórs Bjarnasonar. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson og Guðrún Finnbjarnardóttir er forsöngvari. Á eftir er boðið upp á messukaffi.
Birna Hjaltadóttir, 22/11 2006 kl. 11.28