Jólatónlistarhátíð Hallgrímskirkju á 20 ára vígsluafmæli 2006
Jólatónleikar í Hallgrímskirkju verða sunnudaginn 3. desember kl. 17.00 og mánudaginn 4. desember kl. 20.00. Hin heimsþekkta finnska mezzósópransöngkona Monica Groop syngur evrópsk jólalög með Mótettukór Hallgrímskirkju. Daði Kolbeinsson leikur á óbó og Björn Steinar Sólbergsson á orgel. Stjórnandi er Hörður Áskelsson.
Fimmtudaginn 7. desember kl. 20.00 eru “Sálmar”….Sigurður Flosason og Gunnar Gunnarsson. Jólasálmar leiknir á saxófón og orgel. Sigurður Flosason, saxófónn og Gunnar Gunnarson, orgel.
Sunnudaginn 10. desember kl. 17.00 eru “Sálmar”…Jólin með Bach. Aðventu- og jólasálmar og sálmaforleikir eftir Johann Sebastian Bach. Björn Steinar Sólbergsson, orgel og Kammerkórinn Schola cantorum. Stjórnandi er Hörður Áskelsson.
Á Gamlárskvöld kl. 17.00 (31. desember) eru svo hinir árlegu Hátíðarhljómar við Áramót - Kristinn Sigmundsson og Trompeteria. Jólatónlistarhátíð Hallgrímskirkju lýkur með sérstökum hátíðarbrag á hinum árlegu áramótatónleikum og verður Kristinn Sigmundsson bassi gestur Trompeteria-hópsins. Ásgeir H. Steingrímsson trompet, Eiríkur Örn Pálsson trompet og Hörður Áskelsson orgel.
Miðasala í Hallgrímskirkju - sími 510 1000
Birna Hjaltadóttir, 28/11 2006 kl. 11.11