Kristniboðsdagurinn í Hallgrímskirkju
“14 ár í Kína”
Fyrir nokkrum árum tók Egill Helgason, sjónvarpsmaður, saman heimildarmyndina “14 ár í Kína”, sem er byggð á myndum afa hans, Ólafs Ólafssonar kristniboða.
Í tilefni Kristniboðsdagsins kemur Egill á fræðslumorgun í Hallgrímskirkju, sýndir hluta úr myndinni og minnist starfs þeirra hjóna, Ólafs og Herborgar. Fræðslumorguninn er í suðursal Hallgrímskirkju kl. 10.00 og lýkur rétt fyrir messu og barnastarf, sem hefst í kirkjunni kl. 11. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson predikar og þjónar að messunni ásamt sr. Maríu Ágústsdóttur og áhugahópi Hallgrímskirkju um kristniboð og hjálparstarf. Í messunni syngur Pétur O. Heimisson, framhaldsnemi við Söngskólann í Reykjavík, en organisti er Hörður Áskelsson.
Birna Hjaltadóttir, 9/11 2006 kl. 12.12