Hallgrímskirkja

 

“Mynd mín af Hallgrími”

Opnun myndlistarsýningar kl. 14.00 í forkirkju Hallgrímskirkju, þar sem 28 íslenskir myndlistarmenn sýna útfærslur sínar á hinni alkunnu mynd Hjalta Þorsteinssonar af Hallgrími Péturssyni.

Eftirtaldir listamenn taka þátt í sýningunni: Aðalheiður Valgeirsdóttir, Birgir Andrésson, Daði Guðbjörnsson, Georg Guðni Hauksson, Guðbjörg Lind Jónsdóttir, Guðrún Kristjánsdóttir, Gunnar Örn Gunnarsson, Gunnar Karlsson, Hafliði Hallgrímsson, Harpa Árnadóttir, Helgi Þorgils Friðjónsson, Jóhann L. Torfason, Jóhanna Þórðardóttir, Jón Reykdal, Kjartan Guðjónsson, Kristín Geirsdóttir, Kristín Þorkelsdóttir, Leifur Breiðfjörð, Magdalena Margrét Kjartansdóttir, Páll Guðmundsson frá Húsafelli, Sigrún Eldjárn, Sigurður Þórir, Sigurður Örlygsson, Steinunn Þórarinsdóttir, Valgarður Gunnarsson, Vignir Jóhannsson, Þorbjörg Þórðardóttir, Þórður Hall.

Herra Sigurbjörn Einarsson biskup, fyrsti formaður Listvinafélags Hallgrímskirkju opnar sýninguna. Formaður Listvinafélags Hallgrímskirkju, dr. Margrét Eggertsdóttir flytur stutt ávarp. Á eftir er tónlistarflutningur og veitingar í boði Hallgrímskirkju.

Sýningin Mynd mín af Hallgrími markar upphaf 25. starfsárs Listvinafélags Hallgrímskirkju á 20 ára vígsluafmæli Hallgrímskirkju. Umsjónarmaður sýningarinnar er Jón Reykdal.

Birna Hjaltadóttir, 30/11 2006 kl. 16.26

     

    Hallgrímskirkja, Skólavörðuholti, pósthólf 651, 121 Reykjavík. Sími 510 1000 , fax 510 1010 · Kerfi RSS