Hallgrímskirkja

 

Hátíðarhljómar við áramót

Kristinn Sigmundsson og Trompetería

Jólatónlistarhátíð Hallgrímskirkju lýkur með sérstökum hátíðarbrag á hinum árlegu áramótatónleikum á gamlársdag 31. desember kl. 17.00. Kristinn Sigmundsson óperusöngvari verður þá gestur Trompetería-hópsins í tilefni af 25. starfsári Listvinafélagsins. Á efnisskránni verða bassaaríur úr Messíasi eftir Georg Friedrich Händel og Jólaóratóríunni eftir Johann Sebastian Bach auk alþekktra verka s.s. Adagio í g-moll eftir Albinoni. Trompetería hópurinn hefur í áraraðir kvatt árið með þessum hætti.

Að venju verða síðustu tónleikar ársins hér á landi í Hallgrímskirkju á gamlársdag, 31. desember kl. 17. Þar kemur fram Trompetería-hópurinn, Ásgeir H. Steingrímsson og Eiríkur Örn Pálsson trompetleikarar ásamt Herði Áskelssyni orgelleikara, en áralöng hefð er fyrir þessum áramótatónleikum trompetanna og Harðar fyrir fullu húsi. Við upphaf 25. starfsárs Listvinafélags Hallgrímskirkju gengur Kristinn Sigmundsson, einn dáðasti einsöngvari þjóðarinnar, til liðs við Trompeteríu. Hann syngur þrjár glæsilegar aríur frá fyrri hluta 18. aldar, blómaskeiði barokktónlistarinnar. Tvær þeirra eru meðal þekktustu bassaaría óratóríu­bókmenntanna og allar eru samdar sem samspil söngvarans og einleikstrompets. Þetta eru aríurnar Großer Herr, o starker König úr Jólaóratóríu Bachs, Wacht auf, ihr Adern und ihr Glieder úr kantötu hans Unser Mund sei voll Lachens og arían The Trumpet shall Sound úr óratoríunni Messías eftir Händel. Strengjaleikarar leika með í aríum Kristins.

Að auki hljómar á tónleikunum Rondeau eftir franska tónskáldið Jean Joseph Mouret sem starfaði við frönsku hirðina og við óperuhúsin í París, Tokkata í D-dúr eftir Alessandro Scarlatti og hið kunna Adagio í g-moll eftir Tomaso Albinoni. Öll verkin á efnisskránni eru þekkt hátíðarverk og er þessi sérstaki viðhafnarbúningur í tilefni 25. starfsárs Listvinafélags Hallgrímskirkju, sem hófst í byrjun aðventu, og 20 ára vígsluafmælis Hallgrímskirkju. Einnig eru þetta lokatónleikar Jólatónlistahátíðar Hallgrímskirkju sem hófst 3. desember sl.

Lúðrahljómar hafa tengst komu konunga og pípuorgelið er jafnan nefnt drottning hljóðfæranna og samleikur þeirra á sér langa sögu. Samhljómur þessara hljóðfæra kallar fram hughrif hátíðleika, sem á árlegum tónleikum í Hallgrímskirkju tengjast hátíðarhaldi áramóta hjá fjölda fólks.

Sverrir Jónsson, 27/12 2006 kl. 13.35

     

    Hallgrímskirkja, Skólavörðuholti, pósthólf 651, 121 Reykjavík. Sími 510 1000 , fax 510 1010 · Kerfi RSS