Hátíðleg kyrrðarstund
Kyrrðarstundin á fimmtudag 14. desember kl. 12.00 verður með hátíðlegum blæ. Séra Birgir Ásgeirsson flytur hugvekju í anda jólanna, Hörður Áskelsson kantor Hallgrímskirkju spilar á orgelið og Guðrún Finnbjarnardóttir syngur aðventu- og jólalög. Allir eru hjartanlega velkomnir.
Birna Hjaltadóttir, 13/12 2006 kl. 10.41