Helgileikur í Hallgrímskirkju
Á þriðja sunnudegi í aðventu er barna- og fjölskylduguðsþjónusta í Hallgrímskirkju. Fermingarbörn tendra á aðventukransinum og lesa valda ritningartexta. Barnakór Hallgrímskirkju og Austurbæjarskóla ásamt Unglingakór Hallgrímskirkju flytja helgileik með söng og tali undir stjórn Friðriks S. Kristinssonar og Magneu Sverrisdóttur djákna. Guðsþjónustunni stýrir sr. Jón Dalbú Hróbjartsson ásamt messuþjónum og Hörður Áskelsson kantor er organisti.
Birna Hjaltadóttir, 13/12 2006 kl. 11.01