Hallgrímskirkja

 

Hörður Áskelsson hlýtur Íslensku bjartsýnisverðlaunin

Hörður Áskelsson, kantor Hallgrímskirkju, hlýtur Íslensku bjartsýnisverðlaunin 2006 sem afhent voru við hátíðlega athöfn í Hafnarborg í dag, þriðjudag 5. desember. Hörður hlýtur verðlaunagrip úr áli og eina milljón króna í verðlaunafé.

Hörður Áskelsson, kantor Hallgrímskirkju, hlaut Íslensku bjartsýnisverðlaunin 2006 sem afhent voru við hátíðlega athöfn í Hafnarborg í dag. Hörður hlýtur verðlaunagrip úr áli og eina milljón króna í verðlaunafé. Í tilkynningu segir að Hörður hafi hlotið margvíslegar viðurkenningar fyrir störf sín, sem oftar en ekki hafi einkennst af bjartsýni og þori. Hann hafi verið atkvæðamikill við kynningu á íslenskri kirkjutónlist, frumflutt fjölda verka og komið fram á tónlistarhátíðum heima og erlendis, bæði sem orgelleikari og kórstjóri. Í þakkarávarpi sínu minntist Hörður föður síns, Áskels Jónssonar organista og söngstjóra á Akureyri sem hann tileinkar verðlaunin og félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju sungu lag Áskels, Betlehemsstjarnan og annað eftir verðlaunahafann, Jólagjöfin.

Sverrir Jónsson, 5/12 2006 kl. 17.35

     

    Hallgrímskirkja, Skólavörðuholti, pósthólf 651, 121 Reykjavík. Sími 510 1000 , fax 510 1010 · Kerfi RSS