Jól og áramót í Hallgrímskirkju
Á jólum og um áramót verður að vanda fjölbreytt dagskrá í Hallgrímskirkju.
Jólahátíðin verður hringd inn kl. 18.00, en þá hefst aftansöngur
. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum. Mótettukór Hallgrímskirkju syngur undir stjórn Harðar Áskelssonar, kantors og Björn Steinar Sólbergsson verður organisti. Organistinn ásamt Hljómskálakvintettinum leika jólalög frá kl. 17.00.
Guðsþjónusta á jólanótt kl. 23.30.
Sr. Birgir Ásgeirsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt Magneu Sverrisdóttur, djákna og messuþjónum. Schola cantorum syngur undir stjórn Harðar Áskelssonar, sem einnig verður organisti.
Hátíðarguðsþjónusta jóladag kl. 14.00
. Sr. Birgir Ásgeirsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum. Mótettukór Hallgrímskirkju syngur undir stjórn Björns Steinars Sólbergssonar, organista.
Fjölskylduguðsþjónusta á jólum, annan dag jóla kl. 14.00
. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson hefur hugvekju og þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum. Drengjakór Reykjavíkur í Hallgrímskirkju syngur undir stjórn Friðriks S. Kristinssonar. Organisti Hörður Áskelsson.
Ensk jólamessa annan dag jóla kl. 16.00. Prestur er sr. Bjarni Þór Bjarnason. Organisti er Hörður Áskelsson. Forsöngvari er Guðrún Finnbjarnardóttir.
Sorgin og jólin
kallast samverustund sem verður fimmtudaginn 28. des. kl. 20.00. Kirstín Erna Blöndal syngur einsögn við undirleik Gunnars Gunnarssonar, píanó, Jóns Rafnssonar, kontrabassa, Arnar Arnarsson, gítar. Prestar kirkjunnar hafa hugvekju og lesa bænir. Eftir stundina í kirkjunni verður boðið upp á kaffi og smákökur í safnaðarheimilinu.
Á gamlársdag verða Hátíðahljómar kl. 17.00
, tónleikar á vegum Listvinafélags Hallgrímskirkju. Kristinn Sigmundsson, óperusöngvari, syngur m.a. bassaaríur úr Messíasi og Jólaóratóríunni. Hljóðfæraleikarar verða: Ásgeir H. Steingrímsson, trompet, Eiríkur Örn Pálsson, trompet og Hörður Áskelsson, orgel.
Aftansöngur kl. 18.00
. Sr. Birgir Ásgeirsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum. Mótettukór Hallgrímskirkju syngur undir stjórn Harðar Áskelssonar. Hljólfæraleikarar Hátíðahljóma leika einnig í messunni.
Hátíðarguðsþjónusta á nýársdag kl. 14.00
Sr. María Ágústsdóttir prédikar og sr. Jón Dalbú Hróbjartsson þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum. Mótettukór Hallgrímskirkju syngur undir stjórn Harðar Áskelssonar, kantors.
Birna Hjaltadóttir, 20/12 2006 kl. 12.16