Hallgrímskirkja

 

Jólin með Bach

Aðventu- og jólasálmar og sálmaforleikir eftir Johann Sebastian Bach úr Litlu orgelbókinni hljóma á tónleikum Björns Steinars Sólbergssonar og kammerkórsins Schola cantorum undir stjórn Harðar Áskelssonar í Hallgrímskirkju sunnudaginn 10. desember kl. 17. Tónleikarnir eru hluti af Jólatónlistarhátíð Hallgrímskirkju sem nú er haldin í þriðja sinn en eru jafnframt hluti af viðmikilli sálmadagskrá á 25. starfsári Listvinafélags Hallgrímskirkju.

Aðventu- og jólasálmar og sálmaforleikir eftir Johann Sebastian Bach úr Litlu orgelbókinni hljóma á tónleikum Björns Steinars Sólbergssonar og kammerkórsins Schola cantorum undir stjórn Harðar Áskelssonar í Hallgrímskirkju sunnudaginn 10. desember kl. 17. Tónleikarnir eru hluti af Jólatónlistarhátíð Hallgrímskirkju sem nú er haldin í þriðja sinn en eru jafnframt hluti af viðmikilli sálmadagskrá á 25. starfsári Listvinafélags Hallgrímskirkju. Boðið er til samfelldrar veislu allt árið, þar sem sálmar verða fluttir með fjölbreyttum hætti. Markmiðið er að vekja athygli á mikilvægi sálmsins í listrænni tjáningu innan kirkjunnar, allt frá því að Lúther gaf sálminum þýðingarmikið hlutverk, bæði til fræðslu og til að efla helgihald.

Litla orgelbókin („Orgelbüchlein“) hans Jóhanns Sebastíans hefur að geyma litla sálmaforleiki við sálma sem skipuðu mikilvægan sess í litrófi kirkjuársins á dögum hans. Forleikirnir, sem tilheyra aðventu og jólum, tengjast sálmum sem sumir hverjir eru enn ómissandi í helgihaldi jólatímans hér á Íslandi. sálmarnir Nú kemur heimsins hjálparráð, Sjá himins opnast hlið og Af himnum ofan boðskap ber eru dæmi um þetta. Dagskráin er byggð upp þannig að sálmaforleikirnir og tilheyrandi sálmar eru fluttir í samhengi, Björn Steinar leikur sálmaforleikina á stóra Klais-orgelið, en Schola cantorum svarar hverjum forleik með samsvarandi sálmi í fjögurra radda útfærslu Bachs. Auk þess flytur Björn þekktasta orgeljólaverk Bachs, Pastorale í F-dúr, svo og sjaldheyrða fantasíu í G-dúr (Concerto) sem endurspeglar gleði jólanna.

Miðaverð er 1500 kr. (750 kr. fyrir listvini og 500 kr. fyrir nemendur). Miðasala í Hallgrímskirkju kl. 9-17, sími 510 1000.

Sverrir Jónsson, 8/12 2006 kl. 10.19

     

    Hallgrímskirkja, Skólavörðuholti, pósthólf 651, 121 Reykjavík. Sími 510 1000 , fax 510 1010 · Kerfi RSS