Sálmar jólanna
Jólatónlistarhátíð Hallgrímskirkju heldur áfram fimmtudaginn 7. desember kl. 20 þegar Sigurður Flosason og Gunnar Gunnarsson flytja spuna um þekkt jólalög og Jólasálmar á saxófón og orgel. Tónleikarnir eru upphaf viðamikillar sálmadagskrár á 25. afmælisári Listvinafélags Hallgrímskirkju þar sem efnt er til átta tónleika allt afmælisárið með sálmadagskrám margra af fremstu tónlistarmönnum Íslendinga. Markmiðið er að vekja athygli á mikilvægi sálmsins í listrænni tjáningu innan kirkjunnar, allt frá því að Lúther gaf sálminum þýðingarmikið hlutverk, bæði til fræðslu og til að efla helgihald.< ?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

Sigurður Flosason og Gunnar Gunnarsson hafa leikið saman síðan 1989. Þeir komu fyrst fram saman á Jazzhátið Reykjavíkur árið 2000 og sendu frá sér geisladiskinn Sálma lífsins skömmu síðar. Ári síðar komu Sálmar jólanna út, en Draumalandið, safn íslenskra ættjarðarlaga kom út árið 2004. Hvort heldur er um sálma eða ættjarðarlög að ræða eru útsetningar persónulegar og spuni er þungamiðja í tónlistarnálgun þeirra félaga. Leitast er við að skapa hverju lagi eigin heim og frumlegan farveg, en um leið að sýna því virðingu og væntumþykju. Diskar Gunnars og Sigurðar hafa hlotið frábæra dóma og notið mikilla vinsælda.
Á þessum tónleikum verður flutt efni af geisladiskinum Sálmum jólanna í bland við annað óútgefið efni; nýjar útsetningar sálma sem m.a. tengjast jólunum. Aðgangseyrir kr. 1500.- Miðasala í Hallgrímskirkju, sími 510 1000.
Birna Hjaltadóttir, 5/12 2006 kl. 10.17