Hallgrímskirkja

 

Lúther og jazzinn

Þriðju sálmatónleikar Listvinafélags Hallgrímskirkju verða í kirkjunni sunnudaginn 21. janúar kl. 17. Björn Thoroddsen flytur þar eigin útsetningar á gömlum sálmum kirkjunnar úr fórum Marteins Lúther (1483-1546), sálma sem hann hefur útsett fyrir djasssveit. Það er ekki vitað til þess að annar djasstónlistarmaður hafi nýtt sér verk Lúthers til flutnings. Björn leikur verkin með tríói sínu sem skipað er auk hljómsveitarstjórans, Jóni Rafnssyni bassaleikara og Stefáni S. Stefánssyni saxófónleikara.

Tónleikarnir eru hluti viðamikillar sálmadagskrár á 25. afmælisári Listvinafélags Hallgrímskirkju þar sem efnt er til átta tónleika allt afmælisárið með tónlistarfólki sem hefur á undanförnum árum vakið athygli á sálminum, meðal annars með eigin útsetningum. Markmiðið er að vekja athygli á mikilvægi sálmsins í listrænni tjáningu innan kirkjunnar, allt frá því að Lúther gaf sálminum þýðingarmikið hlutverk, bæði til fræðslu og til að efla helgihald.

Björn Thoroddsen hefur viðað að sér nótum með nokkrum sálmum sem Marteinn Lúther samdi á fyrri hluta 16 aldar. Lúther nýtti það besta í tónlist samtíma síns og átti samskipti við nokkur helstu tónskáld sem þá voru uppi. Lúther var óragur að breyta og endurnýja gamla tónlist og er dæmi um að hann hafi endurgert sálmalag, sem talið er að hafi verið samið um árið 1000. Björn velur sömu leið, endursemur eitthvað af verkum hans, lagar þau að samtíma okkar og gerir sum þeirra að sínum.

Björn Thoroddsen hefur sl. 20 ár verið einn af athvæðamestu djasstónlistarmönnum Íslands og m.a var útnefndur „Jazztónlistarmaður ársins” 2003 á Íslandi. Hann hefur gefið út fjölda diska undir eigin nafni en einnig leikið með mörgum þekktum tónlistarmönnum, Niels-Henning Örsted Pedersen, Nigel Kennedy, Alex Riel, Philip Catherine, Doug Raney, Jakob Fischer, Jörgen Svare, Leni Stern, Steve Kirby o.fl. Björn hefur hlotið ýmsar viðurkenningar, var t.d. valinn Bæjarlistamaður Garðabæjar 2002. Björn hefur flutt tónlist sína á tónleikum út um allan heim, í Evrópu, Asíu og N-Ameríku og leikið í mörgum þekktum tónlistarhúsum, m.a. í Lincoln Center í New York.

Sverrir Jónsson, 17/1 2007 kl. 22.21

     

    Hallgrímskirkja, Skólavörðuholti, pósthólf 651, 121 Reykjavík. Sími 510 1000 , fax 510 1010 · Kerfi RSS