Messa í Hallgrímskirkju
Sunnudaginn 7. janúar, sem er fyrsti sunnudagur eftir þrettánda, er messa og barnastarf í Hallgrímskirkju. Séra Jón Dalbú Hróbjartsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson og félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiða almennan safnaðarsöng. Barnastarfið er í umsjá Magneu Sverrisdóttur djákna. Að venju er boðið upp á kaffisopa eftir messu.
Birna Hjaltadóttir, 4/1 2007 kl. 13.23