Messa í Hallgrímskirkju
Sunnudaginn 14. janúar, sem er annar sunnudagur eftir þrettánda, er messa og barnastarf í Hallgrímskirkju kl. 11.00. Séra Birgir Ásgeirsson predikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Organisti er Hörður Áskelsson. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiða sönginn. Barnastarfið er í umsjá Magneu Sverrisdóttur, djákna. Kaffisopi eftir messu að venju.
Birna Hjaltadóttir, 12/1 2007 kl. 12.33