Þriðji sunnudagur í aðventu
Sunnudagur 13. desember er þriðji sunnudagur í aðventu. Í Hallgrímskirkju er messa og barnastarf kl. 11.00. Séra Kristján Valur Ingólfsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt séra Jóni Dalbú Hróbjartssyni og messuþjónum. Kvennakór Háskóla Íslands syngur undir stjórn Margrétar Bóasdóttur. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Rósa Árnadóttir sér um barnastarfið. Kaffisopi á eftir messu að venju. Allir hjartanlega velkomnir. Karlakór Reykjavíkur er með jólatónleika á laugardag og sunnudag kl. 17.00 og kl. 20.00 báða dagana. Stjórnandi er Friðrik S. Kristinsson. Miðasala í Eymundsson og á midi.is.
Birna Hjaltadóttir, 10/12 2009 kl. 14.15