Hallgrímskirkja

 

Fjórði sunnudagur í aðventu

Á sunnudaginn 20. desember, sem er fjórði sunnudagur í aðventu, er fjölskylduguðsþjónusta í Hallgrímskirkju kl. 11.00. Séra Birgir Ásgeirsson þjónar fyrir altari. Drengjakór Reykjavíkur í Hallgrímskirkju syngur undir stjórn Friðriks S. Kristinssonar. Börn úr TTT-starfi Hallgrímskirkju flytja helgileik undir stjórn Magneu Sverrisdóttur djákna og Rósu Árnadóttur. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Í messunni leika börn úr Allegro/Suzuki skólanum á fiðlu undir stjórn Lilju Hjaltadóttur. Kaffisopi eftir messu að venju. Kl. 16.00 er hin árlega jólamessa á ensku. Messan, Festival of Nine Lessons and Carols, var fyrst haldin í Hallgrímskirkju á níunda áratugnum í samvinnu við Breska sendiráðið, en var fyrir það haldin í Dómkirkjunni. Messan er nú skipulögð árlega til skiptis af sendiráðum Bretlands, Bandaríkjanna og Kanada. Hefð er fyrir því að sendiherrar þessara landa lesa einn ritningartexta ásamt löndum sínum. Festival of Nine Lessons and Carols var frumflutt á aðfangadag árið 1918 í King’s College í Cambridge. Síðan þá hefur hún tekið smávægilegum breytingum en sálmar og ritningarlestur haldist nánast óbreytt. Að þessu sinni er messan skipulögð af sendiráði Kanada og boðið verður upp á léttar veitingar eftir messu í sendiherrabústaðnum að Skildinganesi 50. Prestar verða tveir, sr. Birgir Ásgeirsson og sr. Bjarni Þór Bjarnason. Mótettukór Hallgrímskirkju syngur undir stjórn Harðar Áskelssonar. Nánari upplýsingar veitir Hjördís Hreinsdóttir í síma 864-6599 eða 575-6500.

Birna Hjaltadóttir, 17/12 2009 kl. 16.26

     

    Hallgrímskirkja, Skólavörðuholti, pósthólf 651, 121 Reykjavík. Sími 510 1000 , fax 510 1010 · WP · Kerfi RSS