Hallgrímskirkja

 

Hallgrímskirkja um áramótin

Á gamlársdag, 31. desember 2009, eru tónleikar kl. 17.00: Hátíðahljómar við áramót. Hátíðartónlist fyrir tvo trompeta og orgel. Flytjendur eru Ásgeir H. Steingrímsson og Eiríkur Örn Pálsson trompetleikarar og Hörður Áskelsson orgelleikari. Aðgangseyrir 2500kr. / listvinir kr. 1000. Sjá nánar á heimasíðu Listvinafélags Hallgrímskirkju hér til hægri á síðunni.

Aftansöngur kl. 18.00. Séra Jón Dalbú Hróbjartsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt séra Birgi Ásgeirssyni. Mótettukór Hallgrímskirkju syngur. Einsöngvari er Guðmundur Vignir Karlsson. Organisti er Hörður Áskelsson.

1. janúar 2010, nýársdagurHátíðarguðsþjónusta kl. 14.00.  Séra Birgir Ásgeirsson prédikar og þjónar fyrir altari. Mótettukór Hallgrímskirkju syngur. Organisti er Hörður Áskelsson.

3. janúar 2010, sunnudagur milli nýárs og þrettánda. Messa kl. 11.00.  Séra Jón Dalbú Hróbjartsson prédikar og þjónar fyrir altari.

Frá 4. janúar til febrúarloka 2010 er Hallgrímskirkja lokuð vegna uppsetningar hurðar Leifs Breiðfjörð við aðalinngang kirkjunnar og hreinsunar á kirkjuskipinu. Stefnt er að því að kirkjan verði opnuð að nýju í lok febrúar.  Æskulýðsstarf, TTT, foreldramorgnar og starf aldraðra verður áfram í kórkjallara á sama tíma og venjulega. Einnig verða fyrirbænamessur á þriðjudögum og árdegismessur á miðvikudögum haldnar í kórkjallara og á sama tíma og áður, þ.e. þriðjudaga kl. 10.30-11.00 og miðvikudaga kl. 08.00.

Birna Hjaltadóttir, 29/12 2009 kl. 20.00

     

    Hallgrímskirkja, Skólavörðuholti, pósthólf 651, 121 Reykjavík. Sími 510 1000 , fax 510 1010 · WP · Kerfi RSS