Hallgrímskirkja

 

Árdegismessa í Hallgrímskirkju

Árdegismessa er í Hallgrímskirkju alla miðvikudaga allt árið um kring. Í janúar og febrúar er messan í kórkjallara kirkjunnar (gengið inn að austanverðu, dyr snúa að Barónsstíg).  Á morgun, miðvikudaginn 6. janúar, sem er þrettándinn, er messa kl. 08.00. Séra Kristján Valur Ingólfsson þjónar fyrir altari. Þorsteinn R. Guðlaugsson flytur hugvekju og Birna Gunnarsdóttir fer með bæn.  Á eftir messunni er sameiginlegur morgunverður og kaffi í kórkjallaranum. Allir velkomnir.

Birna Hjaltadóttir, 5/1 2010 kl. 14.15

     

    Hallgrímskirkja, Skólavörðuholti, pósthólf 651, 121 Reykjavík. Sími 510 1000 , fax 510 1010 · Kerfi RSS