Árdegismessa í Hallgrímskirkju
Á morgun, miðvikudaginn 13. janúar, er árdegismessa kl. 08.00 í kórkjallara Hallgrímskirkju. Séra María Ágústsdóttir þjónar fyrir altari, séra Kristján Valur Ingólfsson flytur hugvekju, Sigrún V. Ásgeirsdóttir fer með bæn, Sigurður Björnsson er forsöngvari og Birna G. Hjaltadóttir aðstoðar við útdeilingu. Á eftir messunni er morgunkaffi í umsjón Ásu Guðjónsdóttur og Sigurðar Bjarnasonar. Allir velkomnir.
Birna Hjaltadóttir, 12/1 2010 kl. 10.24