Ferðasunnudagaskóli Hallgrímskirkju
Vegna lokunar Hallgrímskirkju verður næstu 8 til 10 sunnudaga “Ferðasunnudagaskóli Hallgrímskirkju” starfræktur í nokkrum öðrum kirkjum í Reykjavíkurprófastsdæmi vestra. Á sunnudaginn 10. janúar, sem er fyrsti sunnudagur eftir þrettánda, er ferðasunnudagaskólinn í Neskirkju. Öll börn sem koma venjulega í Hallgrímskirkju kl. 11.00 á sunnudögum eru velkomin í Neskirkju þennan sunnudag og næsta sunnudag á eftir þann 17. janúar. Ferðasunnudagaskólinn verður auglýstur í hverri viku og einnig í hvaða kirkju hann er. Fylgist með á heimasíðunni.
Birna Hjaltadóttir, 7/1 2010 kl. 13.32