Fyrirbænamessa
Á morgun, þriðjudaginn 19. janúar, er fyrirbænamessa kl. 10.30-11.00 í kórkjallara Hallgrímskirkju. Beðið fyrir sjúkum. Altarisganga. Kl. 11.00 er starf eldri borgara, leikfimi, samvera og léttur hádegisverður. Umsjón með starfinu hefur Margrét Hróbjartsdóttir.
Birna Hjaltadóttir, 18/1 2010 kl. 12.16