Hallgrímskirkja

 

Hallgrímssöfnuður heimsækir Dómkirkjuna

Á sunnudaginn 31. janúar, sem er fyrsti sunnudagur í níuviknaföstu, tekur Hallgrímssöfnuður þátt í messu í Dómkirkjunni kl. 11.00. Séra Jón Dalbú Hróbjartsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt séra Hjálmari Jónssyni Dómkirkjupresti. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiða messusönginn. Organisti er Hörður Áskelsson. Ferðasunnudagaskóli Hallgrímskirkju í umsjá Rósu Árnadóttur heimsækir Dómkirkjuna á sama tíma. Allir hjartanlega velkomnir. Kl. 14.00 er ensk messa í Dómkirkjunni. Séra Bjarni Þór Bjarnason prédikar og þjónar fyrir altari, organisti er Hörður Áskelsson og forsöngvari er Guðrún Finnbjarnardóttir.

Birna Hjaltadóttir, 28/1 2010 kl. 13.40

     

    Hallgrímskirkja, Skólavörðuholti, pósthólf 651, 121 Reykjavík. Sími 510 1000 , fax 510 1010 · Kerfi RSS