Hallgrímssöfnuður heimsækir Neskirkju
Á sunnudaginn 17. janúar, sem er annar sunnudagur eftir þrettánda, heimsækir Hallgrímssöfnuður Neskirkju og tekur þar þátt í messu kl. 11.00. Séra Jón Dalbú Hróbjartsson prédikar og þjónar ásamt prestum Neskirkju. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiða messusönginn. Organisti er Hörður Áskelsson. Ferðasunnudagaskóli Hallgrímskirkju verður einnig í Neskirkju þennan sunnudag. Allir innilega velkomnir.
Birna Hjaltadóttir, 13/1 2010 kl. 13.58