Hallgrímskirkja

 

Heimsókn í Laugarneskirkju

Á sunnudaginn 24. janúar, sem er síðasti sunnudagur eftir þrettánda, heimsækir Hallgrímssöfnuður Laugarneskirkju og tekur þátt í messu kl. 11.00. Ferðasunnudagaskóli Hallgrímskirkju er í Laugarneskirkju á sama tíma. Séra Birgir Ásgeirsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt séra Hildi Eir Bolladóttur presti í Laugarneskirkju. Drengjakór Reykjavíkur í Hallgrímskirkju syngur í messunni undir stjórn Friðriks S. Kristinssonar. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Allir hjartanlega velkomnir.

Birna Hjaltadóttir, 20/1 2010 kl. 21.22

     

    Hallgrímskirkja, Skólavörðuholti, pósthólf 651, 121 Reykjavík. Sími 510 1000 , fax 510 1010 · Kerfi RSS