Starfsemi í kórkjallara Hallgrímskirkju
Á morgun, þriðjudaginn 5. janúar 2010, er fyrirbænamessa kl. 10.30-11.00 í kórkjallara kirkjunnar. Starf eldri borgara hefst að messu lokinni og stendur til kl. 13.30.
Æskulýðsstarf, TTT, foreldramorgnar, fermingarfræðsla, hádegisbæn, fyrirbænamessur, árdegismessur á miðvikudögum og starf eldri borgara heldur áfram í kórkjallara kirkjunnar, gengið inn að austanverðu (dyr snúa í átt að Barónsstíg).
Birna Hjaltadóttir, 4/1 2010 kl. 12.31