Árdegismessa - öskudagur
Á morgun, miðvikudaginn 17. febrúar, sem er öskudagur, er messa í kórkjallara Hallgrímskirkju kl. 08.00. Séra Kristján Valur Ingólfsson þjónar fyrir altari og séra Árni Svanur Daníelsson prédikar. Félagar úr miðvikudagssöfnuðinum sjá um aðra messuliði. Á morgun er einnig 7 ára afmæli miðvikudagssafnaðarins. Á eftir messunni er kaffi og léttur morgunverður. Allir innilega velkomnir.
Birna Hjaltadóttir, 16/2 2010 kl. 16.09