Hallgrímskirkja

 

Messa í Hallgrímskirkju 28. febrúar 2010

Á sunnudaginn 28. febrúar, sem er annar sunnudagur í föstu, er hátíðarmessa og barnastarf í Hallgrímskirkju kl. 11.00. Hallgrímskirkja hefur verið lokuð síðan 5. janúar vegna hreinsunar og annarra framkvæmda og er því verki að ljúka þessa dagana. Nú er allt að færast í eðlilegt horf og horfum við í Hallgrímskirkju með tilhlökkun til sunnudagsins. Séra Jón Dalbú Hróbjartsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt séra Birgi Ásgeirssyni, séra Maríu Ágústsdóttur, Magneu Sverrisdóttur djákna og messuþjónum. Mótettukór Hallgrímskirkju syngur undir stjórn Harðar Áskelssonar. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Barnastarfið er í umsjá Rósu Árnadóttur. Eftir messuna er opnun myndlistarsýningar Gunnars S. Magnússonar myndlistarmanns. Boðið upp á kaffisopa á eftir messu. Allir hjartanlega velkomnir.

Kl. 14.00 er ensk messa. Séra Bjarni Þór Bjarnason prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson, forsöngvari er Guðrún Finnbjarnardóttir. Kaffiveitingar eftir messu.  Allir hjartanlega velkomnir.

Birna Hjaltadóttir, 24/2 2010 kl. 18.35

     

    Hallgrímskirkja, Skólavörðuholti, pósthólf 651, 121 Reykjavík. Sími 510 1000 , fax 510 1010 · WP · Kerfi RSS