Hallgrímskirkja

 

Æskulýðsdagurinn í Hallgrímskirkju

Á sunnudaginn 7. mars, sem er þriðji sunnudagur í föstu og Æskulýðsdagurinn, er guðsþjónusta í Hallgrímskirkju kl. 11.00. Séra Birgir Ásgeirsson þjónar fyrir altari. Fermingarbörn eru messuþjónar. TTT annast hugvekju undir stjórn Magneu Sverrisdóttur, djákna og Jódísar Káradóttur. Bænasteinum dreift og þeir bornir að altari. Umsjón með því hefur Rósa Árnadóttir. Drengjakór Reykjavíkur í Hallgrímskirkju syngur undir stjórn Friðriks S. Kristinssonar. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Hljóðfæraleikur: Halla Heimisdóttir, klarinett og Jarþrúður Iða Másdóttir, gítar. Kaffisopi eftir messu.

Kl. 15.00 Fyrirlestur: Hallgrímur ungi og Halldóra kirkjusmiður á Hólum. Steinunn Jóhannesdóttir flytur. Tónlistarhópurinn Spilmenn Ríkínís flytur tónlist frá ungdómsárum Hallgríms. Umræður og kaffiveitingar á eftir.

Birna Hjaltadóttir, 4/3 2010 kl. 15.23

     

    Hallgrímskirkja, Skólavörðuholti, pósthólf 651, 121 Reykjavík. Sími 510 1000 , fax 510 1010 · Kerfi RSS