Árdegismessa
Á morgun, miðvikudaginn 17. mars, er morgunmessa í Hallgrímskirkju kl. 08.00. Séra Birgir Ásgeirsson þjónar fyrir altari, séra Gunnþór Ingason flytur hugvekju, Ómar Kristjánsson fer með bæn, Sigrún V. Ásgeirsdóttir er forsöngvari og Sigurður Bjarnason aðstoðar við útdeilingu. Á eftir er sameiginlegur morgunverður í safnaðarsalnum og sér Lára Árnadóttir um kaffið. Allir innilega velkomnir.
Birna Hjaltadóttir, 16/3 2010 kl. 13.01