Hallgrímskirkja

 

Fræðslumorgunn og messa í Hallgrímskirkju

Sunnudagur 14. mars, sem er fjórði sunnudagur í föstu, hefst á fræðslumorgni kl. 10.00. Séra María Ágústsdóttir, héraðsprestur, flytur erindi um bænina sem Jesús kenndi, Faðir vor. Sú bæn hefur meiri dýpt og vídd en allar aðrar bænir og í þessu erindi er leitað fanga í gríska textann, til Fræða Lúthers minni og miðlað úr eigin reynslubrunni. Allir eru velkomnir og heitt er á könnunni fram að messunni sem hefst kl. 11.00. Séra Jón Dalbú Hróbjartsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt séra Maríu Ágústsdóttur. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiða messusönginn. Organisti er Hörður Áskelsson. Barnastarfið er í umsjá Rósu Árnadóttur. Allir eru hjartanlega velkomnir og boðið er upp á kaffisopa eftir messu.

Birna Hjaltadóttir, 11/3 2010 kl. 18.11

     

    Hallgrímskirkja, Skólavörðuholti, pósthólf 651, 121 Reykjavík. Sími 510 1000 , fax 510 1010 · Kerfi RSS