Árdegismessa
Alla miðvikudaga, allt árið um kring, er morgunmessa kl. 08.00 í Hallgrímskirkju. Gott er að byrja daginn á helgistund, áður en farið er út í ys og þys dagsins. Á morgun, miðvikudaginn 19. maí, þjónar séra María Ágústsdóttir fyrir altari, séra Kristján Valur Ingólfsson flytur hugvekju, Sigrún V. Ásgeirsdóttir fer með bæn, Birna G. Hjaltadóttir er forsöngvari og aðstoðar við útdeilingu. Á eftir er sameiginlegur morgunverður í umsjá Vilhjálms Grímssonar í safnaðarsal kirkjunnar, þar sem við eigum gott samfélag og uppbyggjandi umræður. Allir hjartanlega velkomnir.
Birna Hjaltadóttir, 18/5 2010 kl. 13.13