Árdegismessa
“Nú heilsar vorsins blíði blær og brosir himinn, land og sær, allt lofar ljósið bjarta.” Þannig byrjar fallegur sænskur sumarsálmur, textinn er eftir dr. Sigurbjörn Einarsson biskup og lagið eftir Nathan Söderblom. Við heilsum ykkur og bjóðum ykkur velkomin í árdegismessu á morgun, miðvikudaginn 26. maí kl. 08.00. Séra Kristján Valur Ingólfsson þjónar fyrir altari, Grétar Einarsson flytur hugvekju, Kristján Þorgeirsson fer með bæn, Sigurður Björnsson er forsöngvari og Dóra Þorkelsdóttir aðstoðar við útdeilingu. Á eftir er morgunverður í safnaðarsalnum í umsjá Sigrúnar V. Ásgeirsdóttur. Allir hjartanlega velkomnir.
Birna Hjaltadóttir, 25/5 2010 kl. 12.15