Árdegismessa, miðvikudaginn 12. maí 2010
“Nú skrúða grænum skrýðist fold og skæru augun ljóma…” segir í fallegum vorsálmi, sem biskupinn okkar, herra Karl Sigurbjörnsson hefur ort við sænskt lag. Þegar allt er að grænka í kringum okkur og dagarnir lengjast er gott að byrja fallegan vordag á að ganga til kirkju og njóta árdegismessunnar sem byrjar kl. 08.00 í Hallgrímskirkju. Séra Birgir Ásgeirsson þjónar fyrir altari, Kristján Þorgeirsson flytur hugvekju, Ómar Kristjánsson fer með bæn, Dóra Þorkelsdóttir er forsöngvari og Vilhjálmur Grímsson aðstoðar við útdeilingu. Á eftir messunni er morgunverður í safnaðarsalnum í umsjá Birnu Gunnarsdóttur og Þorsteins Guðlaugssonar. Allir hjartanlega velkomnir.
Birna Hjaltadóttir, 11/5 2010 kl. 13.48