Hallgrímskirkja

 

Fyrirbænaguðsþjónusta

Á morgun, þriðjudaginn 18. maí, er fyrirbænaguðsþjónusta kl. 10.30 í kórkjallara Hallgrímskirkju. Beðið fyrir sjúkum. Altarisganga í annað hvert skipti. Allir hjartanlega velkomnir.

Fyrirbænaguðsþjónustan/messan verður áfram í allt sumar í kórkjallara kirkjunnar. Starf eldra fólks hefst að nýju í september.

Birna Hjaltadóttir, 17/5 2010 kl. 11.04

     

    Hallgrímskirkja, Skólavörðuholti, pósthólf 651, 121 Reykjavík. Sími 510 1000 , fax 510 1010 · WP · Kerfi RSS