Hallgrímskirkja

 

Hvítasunnan í Hallgrímskirkju

Á sunnudaginn 23. maí, hvítasunnudag, er hátíðarmessa kl. 11.00. Séra Jón Dalbú Hróbjartsson prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Mótettukór Hallgrímskirkju syngur undir stjórn Harðar Áskelssonar sem jafnframt er organisti. Í messunni syngja einnig tveir gestakórar: Stúlknakór Reykjavíkur undir stjórn Margrétar Pálmadóttur og Stúlknakór Hamborgar undir stjórn Gesa Werhahn. Eftir messuna býður Stúlknakór Hamborgar upp á stutta tónleika. Sögustund er fyrir börnin í umsjá Rósu Árnadóttur og að venju er boðið upp á kaffisopa eftir messu.

Á mánudaginn 24. maí, sem er annar hvítasunnudagur, er messa kl. 11.00. Séra María Ágústsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiða messusönginn. Organisti er Hörður Áskelsson. Kaffisopi eftir messu.  Verið innilega velkomin í Hallgrímskirkju um hvítasunnuna.

Birna Hjaltadóttir, 20/5 2010 kl. 16.40

     

    Hallgrímskirkja, Skólavörðuholti, pósthólf 651, 121 Reykjavík. Sími 510 1000 , fax 510 1010 · WP · Kerfi RSS