Messa í Hallgrímskirkju
Á sunnudaginn 16. maí, sem er sjötti sunnudagur eftir páska, er messa kl. 11.00. Séra Jakob Ágúst Hjálmarsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt séra Birgi Ásgeirssyni. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiða messusönginn. Organisti er Hörður Áskelsson. Sögustund fyrir börnin. Að venju er boðið upp á kaffisopa eftir messu. Allir hjartanlega velkomnir.
Birna Hjaltadóttir, 14/5 2010 kl. 11.35