Messur í Hallgrímskirkju á þrenningarhátíð - sænskur kór í heimsókn
Á sunnudaginn 30. maí, sem er þrenningarhátíð, er messa kl. 11.00. Séra Birgir Ásgeirsson prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiða messusönginn. Organisti er Hörður Áskelsson. Í messunni syngur kór Þrenningarkirkjunnar í Kristianstad á Skáni í Svíþjóð. Sögustund er fyrir börnin og kaffisopi á eftir messunni. Allir innilega velkomnir.
Ensk messa er kl. 14.00. Séra Bjarni Þór Bjarnason prédikar og þjónar fyrir altari, organisti er Hörður Áskelsson og forsöngvari er Guðrún Finnbjarnardóttir. Kaffiveitingar á eftir messunni. Allir innilega velkomnir.
Birna Hjaltadóttir, 28/5 2010 kl. 10.26