Alþjóðlegt orgelsumar og helgihald í Hallgrímskirkju
Fimmtudaginn 1. júlí kl. 12.00 verða fyrstu hádegistónleikar í sumartónleikaröðinni Alþjóðlegt orgelsumar í Hallgrímskirkju sem haldnir eru í samvinnu við Félag íslenskra organista. Friðrik Vignir Stefánsson organisti Seltjarnarneskirkju og Eygló Rúnarsdóttir mezzosópran flytja þar bæði orgelverk og kirkjuleg sönglög frá ýmsum tímum. Á efnisskránni eru orgelverk eftir Händel og Lefébury-Wély, Ave Maria eftir Caccini, Ave Maria eftir Cherubini, Pie Jesu eftir Fauré og fleira. Aðgangseyrir er kr. 1000.-.
Helgina 3. og 4. júlí verða tvennir tónleikar á vegum Alþjóðlegs orgelsumars í Hallgrímskirkju. Þar mun Christian Præstholm, danskur organisti af yngri kynslóðinni og tónskáld, leika efnisskrá sem er í senn hefðbundin og framsækin. Á efnisskrá laugardagsins eru verk eftir Alain, J.S. Bach, Messiaen og hinn danska J.P.E. Hartmann, en á sunnudaginn flytur Christian sálmforleiki eftir sjálfan sig ásamt verkum eftir Dupré og J.S. Bach. Christian Præstholm stundaði meðal annars orgelnám í París hjá Susan Landale og í London hjá David Titterington. Hann starfar sem tónlistarstjóri við Sct. Mortens kirkjuna í Randers og kennir við Tónlistarháskólann í Árósum. Christian hefur áður sótt Alþjóðlega orgelsumarið heim og leikið í Hallgrímskirkju, og hann hefur einnig frumflutt verk eftir ung íslensk tónskáld. Fyrri tónleikar Christian Præstholm eru á laugardaginn kl. 12.00 og standa í u.þ.b. hálftíma. Aðgangseyrir er kr. 1000.-. Síðari tónleikar hans eru á sunnudaginn kl. 17.00 og standa í u.þ.b. klukkustund. Aðgangseyrir er kr. 1500.-. Aðgangur ókeypis fyrir félaga í Listvinafélagi Hallgrímskirkju á alla viðburði Alþjóðlegs orgelsumars.
Á sunnudaginn 4. júlí, sem er fimmti sunnudagur eftir þrenningarhátíð, er messa kl. 11.00. Séra Birgir Ásgeirsson prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiða messusönginn. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Fermd verður í messunni Aðalheiður Björg Hugrúnardóttir. Sögustund er fyrir börnin og kaffisopi á eftir messunni að venju.
Birna Hjaltadóttir, 30/6 2010 kl. 10.45